Sumarhiti!

Það er búið að vera algjört sumar veður hérna í Vín síðustu daga, 17-19°C! Það er bara eins og gott íslenskt sumar. Það eina leiðinlega er að ég hef lítið getað notið veðursins þar sem að ég er að drepast úr kvefi og hef verið veik síðustu daga sem er að sjálfsögðu alveg týpískt fyrir mína heppni.

Það lá við að ég færi og verslaði sumardress í dag en ég lét skópar duga (öhhm). Það að kaupa skó læknar sálartetrið, mætti alveg lækna kvef og slen líka. 

Þýskukúrsinn gengur bara ágætlega, er alltaf að verða betri og betri í þýsku. Ég skil amk mun meira og get lesið soldið líka, það að tala þýsku er samt allt annað mál eða "das ist ein andere Geschicht" eins og þýskukennarinn myndi segja. Ég ætla að taka annað þýskunámskeið sem byrjar í apríl og er fram í júní þannig að ég verði alveg ógeðslega góð í þýsku. Það væri náttúrulega ógeðslega hallærislegt að koma heim og kunna ekkert í málinu. 

Skráning í kúrsana í háskólanum byrjar í þessari viku þannig að ég ætla að hitta prófessorinn sem sér um erasmus nemana í stjórnmálafræðinni á miðvikudaginn og spyrja hann út í tæknileg atriði. Ég hlakka til að byrja í tímum og kynnast fleira fólki og svona. Þetta verður stuð!

Vera 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Pétur Pétursson

Hva er enginn vetur þarna í Austurríki? Maður hefur alltaf tengt Austurríki við snjó og skíði og svoleiðis og svo er bara sumar þarna allt árið. Og sjálfur er maður að norpa hérna á þessu bansetta skeri með hálsbólgu og kvef.

Jóhann Pétur Pétursson, 25.2.2008 kl. 18:03

2 Smámynd: Vera Knútsdóttir

Það er reyndar ekkert skíðað í Vín, það er meira í vesturhluta Austurríkis þar sem að slík iðkun fer fram.

Vera Knútsdóttir, 25.2.2008 kl. 18:30

3 identicon

Hæ, já það er eins gott að það sé hægt að skíða þarna! Ég kem eftir rétt rúmar 2 vikur í Alpana:) Ah get ekki beðið! Þetta er í Zillertal er það nálægt þér?

kv.íris.

Íris (IP-tala skráð) 28.2.2008 kl. 13:05

4 Smámynd: Vera Knútsdóttir

Nei Zillertal er í Tyrol sem er eiginlega í hinum enda landsins. Ég ætla nú að reyna að koma og hitta þig samt ;-)

Vera Knútsdóttir, 28.2.2008 kl. 17:27

5 identicon

Rakst á síðuna þína Vera mín og set þig nú í favorites - ekki spurning   Verð nú að fylgast með að þú að þú gerir ekki neitt sem ég mundi ekki gera, hmmmmm

Balalala kveðja - Árný

Árný Örnólfsdóttir (IP-tala skráð) 1.3.2008 kl. 21:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.