Góð hugmynd!

Mikið er þetta nú góð hugmynd, aldrei hefði mér dottið þetta í hug... Takk MBL fyrir frábæra hugmynd, verst að geta ekki notað hana þar sem að ég veit um nokkra prófessora sem lesa MBL... Jæja ég neyðist þá bara til þess að læra fyrir prófin!
mbl.is Svindlað á prófum með iPod
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningar

Það verða nægar spennandi kosningar í maí. Fyrst verður það seinni umferð forsetakosningana í Frakklandi, síðan Alþingiskosningarnar 12. maí og svo stúdentakosningar í Austurríki. Ég mun fylgjast spennt með öllum þessum kosningum, verð þó að viðurkenna að ég hef ekki fylgst nógu vel með forsetakosningunum í Frakklandi en ég get þó sagt það að hvorugur kandídat er nógu frjálslyndur fyrir mig. 

Ég mun að sjálfsögðu vaka frameftir og fylgjast með niðurstöðum Alþingiskosninganna, ég hef loksins gert upp hug minn og ákveðið hvað ég ætla að kjósa. Ég veit í raun ekki hvernig ríkisstjórnarsamstarf ég vil, ég er orðin frekar þreytt á núverandi ríkisstjórn og mig langar að sjá hvort að eitthvað muni breytast með nýrri ríkisstjórn. Annars bara veit ég það ekki, ég vil fá umræðuna um Evrópumálin á dagskrá, því fyrr því betra. EES samningurinn fer að verða úreldur og ef við ætlum að reyna að fá undanþágur þá er nú best að fara að vinna í þessu núna annars getum við bara gleymt undanþágum.

Síðan eru það stúdentakosningarnar í Austurríki sem ég fæ beint í æð frá mínum manni. Ég vona innilega að LSF gangi vel í kosningunum enda eru plaggötin í kosningaherferðinni alveg frábær! Ég naut þeirra forréttinda að vera með þeim fyrstu sem fengu að sjá hvernig þau myndi líta út og vá, ég kolféll fyrir hugmyndinni, endalaust töff. Þetta er mynd af aspirín pakkningu með áletruninni "fyrir frelsi, fjölbreytni og sjálfsákvörðunarrétt". Ógeðslega töff.

Ég verð að viðurkenna að ég hef afskaplega lítið fylgst með kosningabaráttunni fyrir Alþingiskosningarnar (sem er í raun skammarlegt þar sem ég er nú einu sinni að læra stjórnmálafræði). Hinsvegar finnst mér bara kosningabárátta eitt það leiðinlegasta sem ég veit um. Ég fór bara og las stefnuskrár flokkana og "kosningaloforðin" og valdi svo bara samkvæmt því hvað ég ætla að kjósa. Mér finnst kosningabaráttan fara oft á svo lágt plan, alveg fyrir neðan allar hellur. Stundum minna kandídatarnir mig á börn í sandkassaleik, börnin eru þó skárri því þau eru ekki eins lágkúruleg og margir stjórnmálamenn. 

Svo er annað sem ég þoli ekki (sem ég hef sloppið við að mestu þó), og það eru meðlimir flokkana sem reyna að sannfæra mann um ágæti síns flokks. Ég meina gott og vel, ég skil að fólk vilji sannfæra sem flesta um sinn flokk og ágæti hans, en ég er bara þannig að því meira sem þú reynir að sannfæra mig, því meiri andúð fæ ég á flokknum. Ég sagði við einn vin minn sem sagðist muna líklega hringja í mig fyrir kosnignar "æi nei ekki gera það, þá kýs ég ykkur alls ekki, ef þú hinsvegar lætur mig í friði þá gæti það mögulega gerst". Hann ákvað að sleppa því að hringja í mig og er ég honum mjög fegin. Ég þarf ekki á því að halda að það sé hringt í mig í miðri prófatörn "Góða kvöldið ........ heiti ég og er að hringja frá...." Ég myndi snappa í símann, ausa yfir greyið manneskjuna fúkyrðum (og manneskjan ætti það ekkert skilið, nema hún sé ein af flokksbundnum vinum mínum og þá, já þá er voðin vís).

Þannig að elskulegir flokksmenn stjórnmálaflokka, EKKI hringja í mig þegar þið eruð farin að örvænta og farin í það að hringja í taugatregta kjósendur. Ég er hvort eð er búin að ákveða mig og það fer engin að hagga því!

En jæja, bælið kallar enda þarf ég að vakna snemma og lesa um nútímavæðingu að hætti Ingleharts og Welzels og reyna að skrifa um þróun Evrunar. 

Lifið heil og reynið að halda sönsum í brjálæðinu!

Vera  


Computer software for blondes

Ég bíð spennt eftir því að microsoft gefi út "Microsoft Excel the blonde proof edition". Mig vantar einmitt eitt slíkt núna... Einnig vantar mig "SPSS statistical tool for blondes", gæti komið sér gríðarlega vel á stundum sem þessum. Núna liggur maður yfir töflum og tölum og vill fá svona og hinsegin próf og töflur og þá er bara spurningin "hvernig er það gert?" Þessi spurning poppar upp af og til þessa stundina og ýmsar vangaveltur fara í gang.  

Þetta blessaða hópverkefni í spurningakönnunum er afkvæmi Satans!

Vankunnátta mín hefur ekkert með það að gera að ég er búin að vera í útlöndum...

Annars er ég ógeðslega þreytt og búin að kjánast of mikið á facebook í dag. Mig vantar svefn og motivation. Símtöl frá fullu fólki í kringum miðnætti á fimmtudagskvöldi eru töff á sinn hátt, en orsaka ekki mikin svefn.  Ég bíð bara eftir því að komast í sykurvímu á sunnudaginn, I'm gonna be high on páskaegg! Já takk!

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband