Þrumuveður - Gewitter!

gewitterStormurinn í gær var æðislegur! Þrumurnar og eldingarnar stóðu í hátt í tvo tíma með tilheyrandi látum og úrhelli! Það var einmitt að hefjast annar stormur með rosa eldingum og látum, úrhellið var að hefjast og spurning hvort að það fylgji haglél með W00t Þó að hann verði jafn langur og sá sem var í gær þá ætti hann að vera gengin yfir áður en að leikurinn hefst, það verður þó áhugavert að sjá hvernig þetta fer ef að hann verður enn í gangi, tja eða ef að annar fylgir á eftir, í kvöld á meðan leiknum stendur Grin Eldingarnar eru mun nærri minni staðsetningu heldur enn í gær (styttra á mili leifturs og hljóðs). 

Ég ELSKA þetta veður! Enda gott að fá ogguponsu kælingu sem kemur með storminum (sem er þó ekki mikil!) Enda búið að vera um og yfir 30° stiga hiti hérna undanfarið! Ég get þó með ánægju tilkynnt það að ég er byrjuð að taka lit í sólinni hérna (já ég, ofur næpuhvíta Vera!) Cool

Aufwiedersehen!

Vera

P.S. ég fer að verða búin með alla kúrsana hérna og þá kemur alvöru blogg um það sem hefur á daga mína drifið ásamt myndum.  

UPDATE - Það byrjaði þessi heljarinnar stormur rétt í þessu með þrumum og eldingum og öllu tilheyrandi! Verst að vera ekki við sjónvarpið til að geta séð leikinn (er í tíma)!


mbl.is Óveður olli sambandsleysi í leik Tyrkja og Þjóðverja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Pétur Pétursson

Bíddu ætlaðir þú ekki að vera laus við kuldann og ógeðslega veðrið uppi á þessu skeri okkar. Og svo er bara verra veður í Austurríki heldur en uppi á skerinu Íslandi. Annars var eitt svona helv. óveður sem að eyðilagði útsendinguna á leik Þjóðverja og Tyrkja. Við misstum af alla vega 20 mínútum af leiknum vegna eldinga.

Jóhann Pétur Pétursson, 29.6.2008 kl. 23:17

2 Smámynd: Vera Knútsdóttir

Vinur, við erum að tala um að þetta veður er tropical! Rosalega heitt! Það voru alveg 25-28°c á meðan á óveðrinu stóð! Engin kuldi Jóhann minn

Vera Knútsdóttir, 30.6.2008 kl. 12:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.